S3XY Knob+Commander (Model 3 2021-2024/Model Y 2021-2025)
S3XY Knob er snjallhnappur til að stýra ýmsum aðgerðum í Tesla og opnar á möguleika sem annars eru ekki fyrir hendi.
S3XY Knob er frábær viðbót við bílinn. Í stað þess að fara alltaf í skjáinn til að breyta stillingum er möguleiki á að gera það með hnappnum. Ef stillingum er breytt með hnappnum uppfærast þær í skjánum og öfugt. Hægt er að vera með nokkrar valmyndir og velja allt að fimm aðgerðir á hverja valmynd.
Auðvelt er að smella hnappnum í miðjuhólfið á bílnum.
Dæmi um mögulegar aðgerðir sem hægt er að framkvæma:
-Stilla bremsuhleðslu "Regeneretive braking" frá 0-100%. Frábær möguleiki sem t.d. eykur öryggi í hálku og liðkar og hreinsar bremsur með meiri notkun.
-Slökkva á lane departure warning pípinu og fá víbring í stýrið í staðinn.
- Slökkva á auto á rúðuþurrkum á meðan Autopilot er í gangi.
-Nota sem gírskiptingu.
-Kveikja á forhitun á rafhlöðu án þess að setja inn í maps.
-Stilla miðstöðvarhitann og blástur.
-Einn smellur til að opna hanskahólfið.
-Stýra tónlistinni á þægilegri máta.
Alls eru um 100 flýtileiðir sem hægt er að velja um.
Pakki inniheldur Knob, Commander og tengikapla.