S3XY 4 Buttons Set (Gen2)
S3XY Buttons eru flýtitakkar sem auðveldlega er hægt að staðsetja á öllum mögulegum stöðum í Tesla og opnar á flýtileiðir að ýmsum aðgerðum og stillingum. Opnar einnig á möguleika sem eru annars ekki fyrir hendi. Hægt að vera með allt að 8 takka. Flýtitakkanir styðja Model 3 allar gerðir, Model Y allar gerðir, Model X (2021+) og Model S (2021+).
S3XY Buttons flýtitakkarnir eru frábær viðbót við bílinn. Í stað þess að fara alltaf í skjáinn til að breyta stillingum er möguleiki á að gera það með tökkunum.
Dæmi um mögulegar aðgerðir sem hægt er að framkvæma:
-Stilla bremsuhleðslu "Regeneretive braking" frá 0-100%. Frábær möguleiki sem t.d. eykur öryggi í hálku og liðkar og hreinsar bremsur með meiri notkun. Virkar á öll Tesla Model.
-Setja á "Offroad Mode". Virkar ekki á öll Tesla Model nema SR Telsa Model. Nota sem gírskiptingu. Frábær kostur fyrir Model 3 Highland, S og X sem eru ekki með gírstöng.
-Kveikja á forhitun á rafhlöðu án þess að setja inn í maps.
-Stilla miðstöðvarhitann og blástur.
-Opnaðu og aflæstu hleðsluporti. Gott þegar maður er ekki að nota Tesla hleðslustöð.
-Settu takka aftur í svo farþegar geti sjálfir stillt sætishitann.
-Einn smellur til að opna hanskahólfið.
-Stýra tónlistinni á þægilegri máta.
Alls eru um 130 flýtileiðir sem hægt er að velja um.
S3XY 4 Buttons set inniheldur fjóra Buttons og Commander. Kapall til að tengja fylgir ekki og þarf að kaupa aukalega.